Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

638/2006

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar. - Brottfallin

1. gr.

Upphæð elli- og örorkulífeyris, sbr. 1. mgr. 11. gr. og 4. mgr. 12. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skal hækka frá 1. júlí 2006 að telja um 5,5% frá því sem hún var í júní 2006. Einnig skal upphæð elli- og örorkulífeyris hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 2,9% frá því sem hún var í desember 2006.

2. gr.

Upphæð vasapeninga, sbr. 5. mgr. 43. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skal hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 25% frá því sem hún var í desember 2006.

3. gr.

Upphæð heimilisuppbótar, sbr. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 4.361 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. júlí 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica