Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1007/2004

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2005. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæðir tekjutryggingar og tekjutryggingarauka skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2005:
a) Í júlí 2005 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2005 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum og 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 472/2004 um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2004.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2004.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica