Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

919/2003

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. - Brottfallin

919/2003

REGLUGERÐ
um hækkun bóta almannatrygginga.

1. gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993 skulu hækka frá 1. janúar 2004 að telja um 3% frá því sem þær voru í desember 2003.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. og 17. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2004.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 8. desember 2003.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica