Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

241/2003

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. - Brottfallin

241/2003

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999
um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma.

1. gr.

5. gr. orðast svo:

5. gr.
Tilkynningaskyldir sjúkdómar.

Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru:
barnaveiki
berklar
bótúlismi
Creutzfeldt Jacob veiki og afbrigði hennar
enterohemorrhagisk E. coli sýking
giardiasis
gulusótt og aðrar blæðandi veiruhitasóttir
heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu (HABL)
hemofilus influenzea sjúkdómur gerð b
hettusótt
HIV-sýking
holdsveiki
hundaæði
kampýlóbaktersýking
kikhósti
klamydíusýking
kólera
legíónellusýking
lekandi
lifrarbólga A
lifrarbólga B
lifrarbólga C
lifrarbólga E
lifrarbólga vegna annarra veira
linsæri
listeríusýking
lömunarveiki
meningókokkasjúkdómur
miltisbrandur
mislingar
rauðir hundar
salmonellusýking
sárasótt
sígellusýking
stífkrampi
svarti dauði


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 3. gr., sóttvarnalaga nr. 19/1997, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 4. apríl 2003.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica