Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

442/2001

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót, sérstaka heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt 9. og 10. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð - Brottfallin

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður eftirfarandi:
Reglugerð um heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð.


2. gr.

7. gr. reglugerðarinnar fellur brott.


3. gr.

Í 3. málsl. 1. mgr. 8. gr. komi í stað fjárhæðarinnar "96.230" fjárhæðin "112.000".


4. gr.

Í 4. tölul. 1. mgr. 9. gr. komi í stað orðanna "sérstakrar heimilisuppbótar" orðið "tekjutryggingarauka".

Í 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. komi í stað orðanna "sérstakrar heimilisuppbótar" orðið "tekjutryggingarauka".


5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. gr. laga nr. 118/1993, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. júlí 2001.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 1. júní 2001.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica