Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

222/2001

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. - Brottfallin

222/2001

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að haldin sé smitsjúkdómaskrá. Skráin tekur til smitsjúkdóma og bólusetninga (ónæmisaðgerða), sbr. reglugerð um bólusetningar á Íslandi. Gæta skal fyllsta trúnaðar um allar einkalífsupplýsingar sem fram koma í smitsjúkdómaskrá og gilda um skrána sömu reglur og aðrar sjúkraskrár. Ítrustu varúðar skal gætt við meðferð, vörslu og sendingu upplýsinga um tilkynningaskylda sjúkdóma.


2. gr.

2. mgr. 3. gr. orðast svo:
Læknum og hjúkrunarfræðingum er skylt að skrá í sjúkraskrá, samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis, allar bólusetningar sem þeir framkvæma. Læknar tilkynna sóttvarnalækni um bólusetningar sem gerðar hafa verið.


3. gr.

4. gr. orðast svo:

4. gr.
Skráningarskyldir sjúkdómar.

Skráningarskyldir sjúkdómar eru:

afbrigðilegar berklasýkingar kláðamaur
bráður niðurgangur lungnabólga
condyloma genitalis Lyme sjúkdómur (borreliosis)
eyrnabólga matareitrun af völdum sýkla eða eiturefna þeirra
flatlús mýrarkalda (malaría)
hálsbólga njálgur
heilabólga (encephalitis/
meningoencephalitis)
psittacosis
heilahimnubólga af völdum sýkla ristill (herpes zoster)
heilahimnubólga af óþekktum toga skarlatssótt
hlaupabóla streptókokkahálsbólga
höfuðlús toxóplasmasýking
inflúensa þvagrásarbólga af óþekktri orsök



4. gr.
5. gr. orðast svo:
5. gr.
Tilkynningaskyldir sjúkdómar.

Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru:

barnaveiki lifrarbólga A
berklar lifrarbólga B
bótúlismi lifrarbólga C
Creutzfeldt Jacob veiki og afbrigði hennar lifrarbólga E
enterohemorrhagisk E. coli sýking lifrarbólga vegna annarra veira
giardiasis linsæri
gulusótt listeríusýking
hettusótt lömunarveiki
HIV-sýking meningókokkasjúkdómur
holdsveiki miltisbrandur
hundaæði mislingar
kampýlóbaktersýking rauðir hundar
kíghósti salmonellusýking
klamydíusýking sárasótt
kólera sígellusýking
legíónellusýking stífkrampi
lekandi svarti dauði


5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 3. gr., sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 9. mars 2001.

Ingibjörg Pálmadóttir.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica