Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

925/2000

Reglugerð um iðgjald vegna slysatryggingar sjómanna. - Brottfallin

925/2000

REGLUGERÐ
um iðgjald vegna slysatryggingar sjómanna.

1. gr.

Útgerðarmenn fiskiskipa skulu tryggja hjá Tryggingastofnun ríkisins áhættu vegna bótaskyldra slysa, sbr. III. kafla laga nr. 117/1993, um almannatryggingar, og 36. gr. sjómannalaga nr. 35/1985.

Tryggingastofnun ríkisins greiðir hinum tryggða fullt kaup eða aflahlut jafnlangan tíma og sjómannalög ákveða hverju sinni.


2. gr.

Útgerðarmenn skulu greiða iðgjald sem nemur 0,65% af samanlögðum launum og aflahlut sjómanna sem hjá þeim starfa hverju sinni.


3. gr.

Skattstjórar annast ákvörðun iðgjalds samkvæmt reglugerð þessari og skal það innheimt af innheimtumönnum ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra. Ákvæði laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, eiga við um gjaldstofn, gjaldskyldu, greiðslutímabil, álagningu og innheimtu iðgjalds samkvæmt þessari reglugerð. Iðgjaldið innheimtist mánaðarlega ásamt tryggingagjaldi. Að tekjuári liðnu skal fara fram endanleg ákvörðun iðgjaldsins í samræmi við launaframtal og skal iðgjaldið sérgreint í álagningarskrá og skattskrá. Ríkisskattstjóri skal halda skrá yfir gjaldskylda aðila samkvæmt reglugerð þessari og skal eftir atvikum leita staðfestingar hans á iðgjaldi útgerðaraðila þegar bótaskylda Tryggingastofnunar ríkisins er ákvörðuð.


4. gr.

Útgerðarmenn sem þess óska geta sagt upp tryggingu skv. reglugerð þessari fyrir 1. nóvember ár hvert vegna næsta árs á eftir. Tilkynning um uppsögn skal berast Tryggingastofnun ríkisins. Eftir að uppsögn hefur öðlast gildi eiga útgerðarmenn ekki rétt á greiðslum vegna launa eða aflahlutar í forföllum vegna slysa en njóta slysatrygginga almennra launþega.


5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 31. gr., sbr. 63. gr. almannatryggingalaga nr. 117/1993 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2001.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 12. desember 2000.

Ingibjörg Pálmadóttir.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica