Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

916/2000

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. - Brottfallin

916/2000

REGLUGERÐ
um hækkun bóta almannatrygginga.

1. gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993 skulu hækka frá 1. janúar 2001 að telja um 4,0 % frá því sem þær voru í desember 2000.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 12. desember 2000.

Ingibjörg Pálmadóttir.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica