Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Stofnreglugerð

590/1998

Reglugerð um sameiningu heilbrigðisstofnana.

1. gr.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að sameina eftirtaldar heilbrigðisstofnanir:

1.1. Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði

Heilsugæslustöðina á Ísafirði ásamt útibúum á Súðavík og Suðureyri

Öldrunarstofnun Önfirðinga á Flateyri

Heilsugæslustöðina á Flateyri

Sjúkraskýlið á Þingeyri

Heilsugæslustöðina á Þingeyri

undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ;

1.2. Heilbrigðisstofnunina á Egilsstöðum

Heilbrigðisstofnunina á Seyðisfirði

Heilbrigðisstofnunina í Neskaupstað

Heilsugæslustöðina á Djúpavogi

Heilsugæslustöðina á Eskifirði

Heilsugæslustöðina á Fáskrúðsfirði

Heilsugæslustöðina á Vopnafirði

undir nafninu Heilbrigðisstofnun Austurlands;

1.3. Heilsugæslustöðina á Hellu

Heilsugæslustöðina á Hvolsvelli

undir nafninu Heilsugæslustöðin Rangárþingi.

2. gr.

Ráðherra skipar hverri hinna sameinuðu heilbrigðisstofnana fimm manna stjórn og fer um skipan þeirra skv. ákvæðum 3. mgr. 30. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu.

3. gr.

Ráðherra skipar fyrrgreindum heilbrigðisstofnunum framkvæmdastjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar viðkomandi stofnunar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. málsl. 2. málsgr. 24. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu og öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. október 1998.

Ingibjörg Pálmadóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.