Heilbrigðisráðuneyti

1371/2022

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á eftirtöldum efnum í fylgiskjali I:

Efni Annað nafn IUPAC (Alþjóðasamtök um hreina og hagnýta efna­fræði) Alþjóða­samningar B Undan­þágur og athuga­semdir
 BZO-4en-POXIZID  4en-pentyl MDA-19  (Z)-N'-(2-oxo-1-(pent-4-en-1-yl)indolin-3-ylidene)benzohydrazide   x  

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 53. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 og 2. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Reglugerð þessi er tilkynnt í samræmi við ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/1535 frá 9. september 2015 um tilhögun miðlunar upplýsinga um tæknireglugerðir og reglur um þjónustu í upplýsingasamfélaginu. Tilkynningin er send samhliða birtingu reglugerðarinnar á grund­velli undanþágu í 7. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 8. desember 2022.

 F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Heiða Björg Pálmadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica