Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

25/1991

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 170/1987 um þátttöku almannatrygginga í bifreiðakaupum fatlaðra. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 170/1987 um þátttöku

almannatrygginga í bifreiðakaupum fatlaðra.

1. gr.

Fjárhæðir þær, sem nefndar eru í 1. mgr. 5. gr. skulu breytast þannig:

Í tölulið 1) komi kr. 200 þús. í stað 180 þús.

Í tölulið 2) komi kr. 600 þús. í stað 550 þús.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 19. gr. sbr. 39. gr. stl. a) laga nr. 67/1971 um almannatryggingar með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 72/1990 með sama heiti.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 16. janúar 1991.

Guðmundur Bjarnason.

Páll Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica