Velferðarráðuneyti

1107/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur fótaaðgerðafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um fótaaðgerðafræðinga sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI

Starfsleyfi.

2. gr.

Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig fótaaðgerðafræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa fótaaðgerðafræðinámi frá viðurkenndri menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi fóta­aðgerða­fræðings sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenn­ingu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnu­markað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá mennta­stofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðis­yfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem fótaaðgerðafræðingur, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því ríki sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauð­syn­leg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðn­ingarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem fótaaðgerðafræðingur, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af fótaaðgerðafræðingi. Landlæknir skal skipuleggja prófið í samráði við viðurkennda menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr.

Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar hjá viðurkenndri menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði skv. 1. mgr. 3. gr. um menntun fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er enn fremur heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI

Réttindi og skyldur.

5. gr.

Faglegar kröfur og ábyrgð.

Fótaaðgerðafræðingur skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Fótaaðgerðafræðingi ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, við­halda þekkingu og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Fótaaðgerðafræðingur skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Fótaaðgerðafræðingur ber ábyrgð á þeirri ráðgjöf, fræðslu, greiningu og meðhöndlun sem hann veitir.

Fótaaðgerðafræðingur má ekki, án samráðs við lækni, taka til meðferðar einstakling með augljós sjúkdómseinkenni, s.s. sýkingu í fótum, sykursýki, hjarta-, blóð- eða æða­sjúkdóma.

Fótaaðgerðafræðingur skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr.

Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu fótaaðgerðafræðings gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu fótaaðgerðafræðings til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Fótaaðgerðafræðingur skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr.

Trúnaður og þagnarskylda.

Fótaaðgerðafræðingur skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir fótaaðgerðafræðing undan þagnar­skyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem fótaaðgerðafræðingi ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber fóta­aðgerða­fræðingi skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu fótaaðgerðafræðings gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

8. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðis­starfsmanna, nr. 951/2012.

9. gr.

Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda að öðru leyti um fótaaðgerðafræðinga.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun, réttindi og skyldur fótaaðgerðafræðinga, nr. 184/1991, með síðari breytingum.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica