Heilbrigðisráðuneyti

64/2023

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 1025/2008 um sjúkradagpeninga.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða gerðar á 3. gr. reglugerðarinnar:

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Auk sjúkradagpeninga greiðist sérstök við­bót vegna barna umsækjenda innan 18 ára aldurs sem hann hefur á framfæri sínu, þar með talin börn utan heimilis umsækjanda sem hann hefur forsjá með.

2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. janúar 2023.

 

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica