Heilbrigðisráðuneyti

1047/2022

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 55/2009 um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

1. gr.

2. og 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Í umsókninni skal ávallt koma fram mat á nauðsyn næringarefna og sérfræðis frá þeim heilbrigðis­starfsmanni sem vinnur að lausn fyrir viðkomandi einstakling ásamt lýsingu á næringar­vanda og rökstuðningur fyrir þörf á næringarefni og sérfæði.

Ef breyting verður á sjúkdómsástandi/næringarvanda getur þurft nýja umsögn hlutaðeigandi heilbrigðis­starfsmanns. Ætíð er krafist nýrrar umsagnar með umsókn ef ekki er samræmi milli þeirra næringar­efna og/eða sérfæðis sem sótt er um greiðsluþáttöku vegna og þeirra upplýsinga sem áður hafa borist með umsókn til Sjúkratrygginga Íslands um þörf á næringarefni og sérfæði. Sjúkra­­tryggingar Íslands geta áskilið að lagt sé fram læknisvottorð.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 1. september 2022.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Guðlaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica