Heilbrigðisráðuneyti

1411/2020

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 55/2009, um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. málsl. orðast svo: Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði vegna þeirra sem dveljast á sjúkrastofnunum eða öldrunarstofnunum.
  2. 2. málsl. fellur brott.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 10. desember 2020.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica