Velferðarráðuneyti

1173/2017

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 1025/2008 um sjúkradagpeninga.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "1.668 kr." kemur: 1.746 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "458 kr." kemur: 480 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2018.

Velferðarráðuneytinu, 18. desember 2017.

Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica