Velferðarráðuneyti

1242/2016

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1025/2008 um sjúkradagpeninga.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "1.552 kr." kemur: 1.668 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "426 kr." kemur: 458 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017.

Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica