Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

1484/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1195/2017, um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "2.085.132 kr." í 1. málsl. kemur: 2.193.552 kr.
  2. Í stað "3.900.000 kr." í 2. málsl. kemur: 4.102.800 kr.
  3. Í stað "2.400.000 kr." í 2. málsl. kemur: 2.524.800 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 63. gr., sbr. 23. gr., laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og 2. mgr. 14. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi 1. gr. reglugerðar nr. 1485/2024, um breytingu á reglugerð nr. 1195/2017, um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica