Félagsmálaráðuneyti

1260/2020

Reglugerð um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2020. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönnunar­bætur á árinu 2020.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

 

2. gr.

Desemberuppbót.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félags­lega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2020 skal fá greidda desemberuppbót að fjárhæð 48.520 kr. enda hafi greiðsluþegi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2020.

Greiðsluþegi sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skemur en tólf mánuði á árinu 2020 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­trygg­ingar, með síðari breytingum, og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 15. desember 2020.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica