Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2024

1440/2022

Reglugerð um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2023.

1. gr. Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á árinu 2023.

Orlofsuppbætur skulu greiddar 1. júlí og desemberuppbætur skulu greiddar 1. desember.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Orlofsuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 20% af fjárhæð tekjutryggingar lífeyrisþega skv. 28. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og fjárhæð heimilisuppbótar örorkulífeyrisþega skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.

Desemberuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 30% af fjárhæð tekjutryggingar og heimilisuppbótar lífeyrisþega, sbr. 1. mgr. Fjárhæð desemberuppbótar reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2023.

3. gr. Eingreiðslur til ellilífeyrisþega.

Full eingreiðsla til ellilífeyrisþega skal nema 117.526 kr. Skal 40% eingreiðslu greiðast 1. júlí sem orlofsuppbót og 60% fjárhæðarinnar 1. desember sem desemberuppbót.

Eingreiðsla skal lækka um 2% af tekjum lífeyrisþega, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar, uns hún fellur niður. Þeir sem fá greiddan hálfan ellilífeyri skulu fá 50% af fjárhæð skv. 1. mgr.

Um áhrif búsetu, frestun og flýtingu á töku lífeyris á fjárhæð eingreiðslna skv. 1. mgr. fer skv. 16., 19. og 20. gr. laga um almannatryggingar.

Hafi ellilífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skulu eingreiðslur til hans skv. 1. mgr. greiddar í hlutfalli við greiðsluréttindi hans.

Ef fyrir liggur að eingreiðsla í júlí hafi verið of- eða vangreidd skal það leiðrétt við eingreiðslu desembermánaðar og gilda ákvæði 34. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við á.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1647/2021, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2022 og nr. 620/2022, um breytingu á reglugerð nr. 1647/2021, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2022.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.