Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 24. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 21. des. 2023

1439/2022

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr. 98.640
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna
skv. ákvæði til bráðabirgða 2.400.000
c. Ellilífeyrir skv. 1. mgr. 23. gr.
i. Almennt 300.000 8.508.773
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
d. Hálfur ellilífeyrir skv. 2. mgr. 23. gr.
i. Almennt 3.900.000 8.004.400
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
g. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 10.338.153
h. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 10.226.953
i. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 10.338.153
j. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)
skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220 10.338.153
k. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna
skv. 3. mgr. 22. gr. 328.800
l. Ráðstöfunarfé skv. 8. mgr. 48. gr. 1.705.957

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. 2.575.220 10.338.153
b. Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr.
i. Almennt 300.000 8.144.067
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
iii. Með hálfum ellilífeyri 3.900.000 7.822.084
iv. Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna 2.400.000
c. Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr.
i. Vegna atvinnutekna 2.400.000
ii. Vegna lífeyrissjóðstekna 328.800
d. Sérstök uppbót vegna framfærslu skv. 2. mgr. 9. gr.:
i. Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót 399.034
ii. Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót 317.356

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr. 3.562.652

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 617/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.