Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. júlí 2023

1438/2022

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 307.829 3.693.948
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 153.915 1.846.980
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr. 58.222 698.664
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr. 43.041 516.492
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr. 58.222 698.664
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr. 42.634 511.608
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr. 58.222 698.664
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 186.444 2.237.328
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr. 92.406 1.108.872
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 4.488
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr. 42.634 511.608

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. 12.343 148.116
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. 32.090 385.080
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr. 42.634 511.608
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 230.682 2.768.184
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 195.731 2.348.772
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. 63.503 762.036
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. 47.570 570.840
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr. 58.222 698.664
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. 77.787 933.444
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. 63.020 756.240
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr. 21.520 258.240

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 616/2022, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 20. desember 2022.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.