Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Stofnreglugerð

1412/2023

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2024.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. 3. mgr. 30. gr. 98.640
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna
skv. ákvæði til bráðabirgða 2.400.000
c. Ellilífeyrir skv. 3. mgr. 22. gr.
i. Almennt 300.000 9.185.173
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
d. Hálfur ellilífeyrir skv. 4. mgr. 22. gr.
i. Almennt 3.900.000 8.342.587
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
g. Örorkulífeyrir skv. 4. mgr. 30. gr. 2.575.220 10.977.887
h. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 27. gr. 2.575.220 10.587.531
i. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 27. gr. 2.575.220 10.977.887
j. Aldursviðbót (100%) skv. 1. mgr. 29. gr. 2.575.220 10.977.887
k. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna
skv. 5. mgr. 30. gr. 328.800
l. Ráðstöfunarfé skv. 3. mgr. 38. gr. 1.846.523

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. 2.575.220 10.977.887
b. Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr.
i. Almennt 300.000 8.790.454
ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000
iii. Með hálfum ellilífeyri 3.900.000 8.145.277
iv. Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna 2.400.000
c. Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr.
i. Vegna atvinnutekna 2.400.000
ii. Vegna lífeyrissjóðstekna 328.800
d. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.:
i. Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót 421.380
ii. Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót 335.128

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:

efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr. 3.762.270

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 63. gr., sbr. 62. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1439/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023, og reglugerð nr. 689/2023 um breytingu á reglugerð nr. 1439/2022 um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.