Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

576/2026

Reglugerð um brottfall reglugerða á sviði félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

1. gr.

Eftirtaldar reglugerðir eru felldar brott:

  1. Reglugerð nr. 376/1996, um atvinnumál fatlaðra.
  2. Reglugerð nr. 1054/2010, um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu.
  3. Reglugerð nr. 1036/2018, um eftirlit og eftirfylgni vegna þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
  4. Reglugerð nr. 856/2020, um starfsleyfi til einkaaðila sem veita þjónustu við fatlað fólk.
  5. Reglugerð nr. 1320/2020, um starfsleyfi til einkaaðila sem veita félagsþjónustu.

2. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 13. maí 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson

félags- og húsnæðismálaráðherra.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica