Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1437/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "20.037 kr." í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 21.520 kr.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félags­lega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 621/2022, um breytingu á reglugerð nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 20. desember 2022.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica