Innviðaráðuneyti

1091/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 183/2020, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "310.000 kr." í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 340.000 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "7.100.000 kr." í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 7.700.000 kr.
  3. Í stað orðanna "í janúar ár hvert" í 2. mgr. kemur: fyrir hverja úthlutun stofnframlaga með hliðsjón af þróun vísitölu byggingarkostnaðar, þróun á gjaldeyrismarkaði, þróun hrávöru­verðs og þróun launavísitölu.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 10. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 27. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 14. september 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica