Innviðaráðuneyti

182/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 183/2020, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "289.000 kr." kemur: 310.000 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "6.600.000 kr." kemur: 7.100.000 kr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 10. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 27. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 8. febrúar 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica