Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. júní 2022

1655/2021

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr. 98.640
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna
skv. ákvæði til bráðabirgða 1.315.200
c. Ellilífeyrir, almennt skv. 3. málsl. 1. mgr. 23. gr. 300.000 7.720.560
d. Ellilífeyrir, vegna atvinnutekna
skv. 4. málsl. 1. mgr. 23. gr. 2.400.000
e. Hálfur ellilífeyrir skv. 2. mgr. 23. gr. 3.900.000 7.610.293
f. Hálfur ellilífeyrir, vegna atvinnutekna 2.400.000
g. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 8.316.784
h. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 8.234.565
i. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 8.316.784
j. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)
skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220 8.316.784
k. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna
skv. 3. mgr. 22. gr. 328.800
l. Ráðstöfunarfé skv. 3. málsl. 7. mgr. 48. gr. 1.542.148

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 2.575.220 8.316.784
b. Heimilisuppbót, almennt skv. 2. mgr. 8. gr. 300.000 7.390.790
c. Heimilisuppbót, vegna atvinnutekna skv. 2. mgr. 8. gr. 2.400.000
d. Heimilisuppbót með hálfum ellilífeyri 3.900.000 7.445.445
e. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.:
i. Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót 351.920
ii. Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót 279.886

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr. 3.317.181

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1332/2020, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2021.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.