Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2023

1652/2021

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2022 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 933.896 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., skal nema 261.951 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., skal nema 261.951 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 38.540 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 11.158 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 29.009 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 90.271 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1331/2020, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2021 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.