Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Breytingareglugerð

1648/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1195/2017, um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "1.596.198 kr." kemur: 1.669.632 kr.
  2. 3. málsliður orðast svo: Lífeyrisþegi skal hafa 3.900.000 kr. almennt frítekjumark auk 2.400.000 kr. sérstaks frítekjumarks vegna atvinnutekna við útreikning hálfs ellilífeyris.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 7. mgr. 17. gr. og 5. mgr. 23. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1339/2020, um breytingu á reglugerð nr. 1195/2017, um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.