Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

928/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 179/2021, um kröfur varðandi losunarmörk mengandi lofttegunda og efnisagna og gerðarviðurkenningu brunahreyfla fyrir færanlegan vélbúnað til nota utan vega.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem verður g-liður, svohljóðandi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1040 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1628 að því er varðar umbreytingarákvæði hennar til þess að bregðast við áhrifum af völdum COVID-19 hættuástandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2021 frá 11. júní 2021 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 49 frá 22. júlí 2021, bls. 144-147.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 3. gr., 34., 35., 38. og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. ágúst 2021.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.