Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

1337/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:

  1. Í stað "3. mgr." í 2. mgr. kemur: 3.-4. mgr.
  2. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:

Við útreikning uppbótar skv. IV. kafla skal telja til tekna 65% af tekjum lífeyrisþega. Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð skulu þó teljast að fullu til tekna við útreikning uppbótarinnar, að því undanskildu að einungis skal telja til tekna 50% af fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar skv. 21. laga um almannatryggingar og 95% af fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. sömu laga.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr.:

  1. Í stað "778.668 kr." í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 806.700 kr.
  2. Í stað "624.876 kr." í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 647.376 kr.

3. gr.

Í stað "3.032.114 kr." í 11. gr. kemur: 3.141.270 kr.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr.:

  1. Í stað "321.678 kr." í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 333.258 kr.
  2. Í stað "255.834 kr." í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 265.044 kr.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1123/2019, um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

Félagsmálaráðuneytinu, 21. desember 2020.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.