Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

856/2020

Reglugerð um starfsleyfi til einkaaðila sem veita þjónustu við fatlað fólk.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfsleyfi fyrir einkaaðila sem veita eða hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Reglugerðin gildir einnig um einkaaðila sem reka starfsemi sem ekki er lögbundin en hefur það að meginmarkmiði að veita fötluðu fólki sértæka aðstoð og þjónustu.

2. gr. Markmið og skilgreiningar.

Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að og tryggja að umgjörð þjónustu við fatlað fólk sem veitt er af einkaaðilum sé í samræmi við lög og reglur og uppfylli þær faglegu kröfur sem gera má til slíkra þjónustuaðila. Þjónustan skal miða að því að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að geta notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og því sköpuð skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði. Skapa skal skilyrði til þess að fatlað fólk geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum og þjónustan miðist við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður.

Með einkaaðila í skilningi reglugerðar þessarar er átt við félagasamtök, sjálfseignarstofnun, fyrirtæki eða annan ópersónulegan lögaðila sem starfar á einkaréttarlegum grundvelli.

Einstaklingur getur einnig talist einkaaðili í skilningi þessarar reglugerðar fari viðkomandi með forræði á lögbundinni þjónustu eða sinnir starfsemi sem hefur þann megintilgang að veita fötluðu fólki sértæka aðstoð eða þjónustu.

II. KAFLI Leyfisveitingar.

3. gr. Starfsleyfisskylda.

Einkaaðilar sem reka og veita þjónustu sem fellur undir lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir skulu hafa gilt starfsleyfi. Þá eru einkaaðilar sem sinna þjónustu sem ekki er lögbundin einnig starfsleyfisskyldir ef starfsemi þeirra hefur þann megintilgang að veita fötluðu fólki sértæka aðstoð eða þjónustu.

Einstaklingar sem starfa sem verktakar fyrir starfsleyfishafa að þeim þáttum þjónustunnar sem liggja til grundvallar starfsleyfinu starfa á ábyrgð viðkomandi starfsleyfishafa og undir starfsleyfi hans.

Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda starfsemi sem fellur undir ákvæði þessarar reglugerðar áður en starfsleyfi hefur verið gefið út. Starfsleyfishafa er óheimilt að semja við annan lögaðila um að annast einhverja þá þætti sem liggja til grundvallar veitingu starfsleyfis nema viðsemjandi hafi gilt starfsleyfi til þess að sinna þeim þætti þjónustu sem um ræðir. Starfsleyfishafa er þó heimilt að semja við þriðja aðila um að annast afmarkaða rekstrar- eða þjónustuþætti sem ekki liggja til grundvallar veitingu starfsleyfis.

Þeir sem hafa með höndum umsýslu með notendastýrðri persónulegri aðstoð samkvæmt 11. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir skulu hafa til þess starfsleyfi. Umsýsluaðili með fleiri en einum samningi um notendastýrða persónulega aðstoð skal vera lögaðili.

4. gr. Umsókn um starfsleyfi.

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar annast meðferð starfsleyfisumsókna og útgáfu starfsleyfa.

Umsókn ásamt fylgigögnum skv. 5. gr. skal skila rafrænt á þar til gerðu eyðublaði til Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar.

Telji stofnunin að umsókn sé ófullnægjandi eða að upplýsingar vanti skal stofnunin leiðbeina umsækjanda um nauðsynlegar úrbætur, t.d. hvaða upplýsingar vanti, gefa honum hæfilegan frest til úrbóta og leiðbeina um að skortur á gögnum eða ófullnægjandi gögn geti leitt til þess að umsókn sé synjað.

5. gr. Skilyrði starfsleyfis.

Til þess að einkaaðili fái útgefið starfsleyfi samkvæmt reglugerð þessari skal hann gera grein fyrir hvernig hann hyggst uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Þjónustan verði veitt með viðeigandi aðlögun, sbr. 12. tölul. 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
  2. Virkt innra eftirlit verði til staðar í starfseminni sem tryggi að viðurkenndu verklagi sé framfylgt og gæðaviðmið uppfyllt.
  3. Húsnæði þar sem fyrirhugað er að þjónustan verði veitt fullnægi kröfum laga og reglugerða á sviði hollustuhátta, byggingar- og brunamála.
  4. Sýnt sé fram á rekstrarhæfi, m.a. með rekstraráætlun þar sem tilgreindar eru leiðir til öflunar rekstrarfjár og fyrirhugaða nýtingu þess, sbr. einnig 39. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
  5. Forsvarsmaður umsækjanda um starfsleyfi hafi ekki hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Hafi viðkomandi verið dæmdur til refsingar fyrir brot á öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga skal meta áhrif þess á hæfi viðkomandi til að gegna því starfi sem um ræðir, meðal annars að teknu tilliti til eðlis starfseminnar og alvarleika brotsins.
  6. Einkaaðili uppfylli að öðru leyti kröfur laga og reglugerða eftir því sem við á um reksturinn og þjónustuna, svo sem um aðbúnað starfsmanna, áhættumat og reikningsskil.
  7. Ekki liggi fyrir önnur málefnaleg sjónarmið sem mæla gegn veitingu starfsleyfis með tilliti til þess rekstrar sem um ræðir og starfsleyfið nær til.

6. gr. Synjun umsóknar.

Uppfylli umsækjandi ekki skilyrði 5. gr. reglugerðar þessarar skal umsókn um starfsleyfi synjað. Tilkynna skal umsækjanda um starfsleyfi ákvörðunina skriflega og eftir atvikum leiðbeina um rétt til að krefjast rökstuðnings fyrir henni.

7. gr. Tilkynning til notendaráða.

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tilkynnir notendaráði í því sveitarfélagi þar sem þjónustan á að fara fram um fyrirhugaða afgreiðslu á umsókn um starfsleyfi. Í tilkynningunni skal koma fram hver sækir um starfsleyfi ásamt upplýsingum um tegund þjónustu sem sótt er um starfsleyfi fyrir. Tilkynning um fyrirhugaða afgreiðslu umsókna einstaklinga um starfsleyfi vegna umsýslu með einum NPA samningi eru ekki send notendaráðum.

Eftir að tilkynning um fyrirhugaða afgreiðslu á umsókn um starfsleyfi hefur borist notendaráði hefur notendaráð heimild til þess að veita skriflega umsögn um umsóknina. Umsögnin skal byggja á málefnalegum rökum. Umsagnir notendaráða skulu sendar Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar innan fjögurra vikna frá því tilkynning um fyrirhugaða afgreiðslu á umsókn var send notendaráði.

Félagsmálaráðuneytið skal útbúa leiðbeiningar fyrir notendaráð varðandi umsagnir, en slíkar leiðbeiningar skulu unnar í samvinnu við hagsmunafélög fatlaðs fólks og Samband íslenskra sveitarfélaga. Leiðbeiningar skulu vera í samræmi við almennar meginreglur samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. 3. gr. hans.

8. gr. Útgáfa starfsleyfis.

Starfsleyfi skulu almennt vera tímabundin til þriggja ára. Þó er heimilt að veita starfsleyfi til skemmri tíma, binda leyfið við tiltekinn árstíma eða veita starfsleyfi með skilyrðum sem þarf að uppfylla innan tiltekins tíma mæli eðli starfseminnar með því. Hefjist starfsemi leyfishafa ekki innan eins árs frá dagsetningu útgáfu starfsleyfis fellur leyfið úr gildi.

Starfsleyfi veitir eingöngu heimild til þeirrar starfsemi sem mælt er fyrir um í leyfinu. Í starfsleyfi skal koma fram:

Nafn umsækjanda og hver er forsvarsmaður hans, ef við á.
Tegund þjónustu sem heimilt er að veita.
Sveitarfélag þar sem starfsemin fer fram og aðsetur, ef við á.
Önnur skilyrði starfsleyfis, svo sem gildistími leyfisins og ef við á, tímabil þjónustu.

Yfirlit um gild starfsleyfi skulu birt á heimasíðu Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar.

9. gr. Bráðabirgðaleyfi.

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar er heimilt að veita starfsleyfi til bráðabirgða á meðan umsókn er til meðferðar hjá stofnuninni. Við mat á því hvort veita eigi bráðabirgðaleyfi skal m.a. líta til hagsmuna notenda og hvort líklegt sé að umsókn um rekstrarleyfi verði samþykkt.

III. KAFLI Breytingar á leyfisskyldri starfsemi.

10. gr. Breytingar á starfsemi.

Starfsleyfishafa ber að tilkynna allar breytingar sem geta haft áhrif á forsendur eða skilyrði útgáfu starfsleyfis til Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar. Sem dæmi um slíkar breytingar má nefna ef starfsemi flyst í annað húsnæði, breytingar verða á fjölda notenda eða nýr forsvarsmaður tekur við.

Sé þjónustan veitt á grundvelli þjónustusamnings við sveitarfélag skal starfsleyfishafi jafnframt upplýsa sveitarfélagið um breytingarnar.

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar skal meta upplýsingar skv. 1. mgr. innan fjögurra vikna frá móttöku þeirra og tilkynna starfsleyfishafa skriflega um hvort hin breytta starfsemi rúmast innan gildandi starfsleyfis eða hvort sækja þurfi um nýtt starfsleyfi fyrir starfsemina.

Þegar starfsleyfisskyldri starfsemi er hætt ber að tilkynna það til Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar án ástæðulauss dráttar. Starfsleyfi fellur úr gildi við lok starfseminnar.

11. gr. Annmarkar á starfsemi og afturköllun starfsleyfis.

Liggi fyrir upplýsingar um að starfsleyfishafi uppfylli ekki lengur skilyrði 5. gr. reglugerðar þessarar eða aðrir annmarkar séu á starfsemi starfsleyfishafa skal Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tilkynna honum um upphaf máls þar sem úrbóta er krafist.

Í tilkynningu skal tilgreina hvaða upplýsingar liggi fyrir og eftir atvikum bent á nauðsynlegar úrbætur. Starfsleyfishafa skal þá gefinn frestur til úrbóta m.t.t. alvarleika annmarka. Hafi ekki verið bætt úr tilgreindum annmörkum innan tímafrests sem gefinn var í tilkynningu getur Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar afturkallað starfsleyfið.

Sé rekstri starfsleyfishafa verulega ábótavant að mati Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar er stofnuninni heimilt að afturkalla starfsleyfi án þess að veittur sé frestur til úrbóta. Skal starfsleyfishafi þá stöðva starfsemi um leið og starfsleyfi er afturkallað.

12. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. og 40. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1033/2018, um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra þjónustu- og rekstraraðila sem veita þjónustu við fatlað fólk.

Endurskoða skal reglugerð þessa að fenginni reynslu af útgáfu starfsleyfa innan þriggja ára frá gildistöku hennar.

Félagsmálaráðuneytinu, 17. ágúst 2020.

Ásmundur Einar Daðason.

Erna Kristín Blöndal.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.