Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1051/2019

Reglugerð um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði í desember 2019.

2. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2019 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2019 á rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði að fjárhæð kr. 83.916 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

3. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2019 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2019 en tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

4. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2019 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2019 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2019 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2019 ásamt því að hafa verið tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2019, sbr. þó 4. mgr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

Þrátt fyrir 1.-3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 20.979.

5. gr.

Desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari skulu greiddar út eigi síðar en 15. desember 2019.

6. gr.

Sá sem á rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt reglugerð þessari og hefur framfærsluskyldu gagnvart barni eða börnum yngri en 18 ára á rétt á 4% af óskertri desemberuppbót, sbr. 1. mgr. 2. gr., með hverju barni.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 26. nóvember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.