Velferðarráðuneyti

1034/2018

Reglugerð um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra einkaaðila sem veita félagsþjónustu. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um útgáfu og skilyrði starfsleyfa til handa félagasamtökum, sjálfs­eignar­stofnunum og öðrum einkaaðilum sem veita eða hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum nr. 40/1991, um félags­þjónustu sveitarfélaga.

2. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að og tryggja að umgjörð félagsþjónustu sem veitt er af félagasamtökum, sjálfseignarstofnunum og öðrum einkaaðilum sé í samræmi við lög og reglur á sviðinu og uppfylli þær faglegu kröfur sem gera má til slíkra þjónustu- og rekstraraðila. Við framkvæmd félagsþjónustu skulu sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skal í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður.

II. KAFLI

Leyfisveitingar.

3. gr.

Starfsleyfisskylda.

Öll starfsemi félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra einkaaðila sem fellur undir ákvæði laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum, skal hafa gilt starfsleyfi.

Óheimilt er að hefja starfsleyfisskyldan rekstur sem fellur undir ákvæði þessarar reglugerðar án þess að starfsleyfi hafi verið gefið út.

4. gr.

Umsókn um starfsleyfi.

Umsókn ásamt fylgigögnum skv. 5. gr. skal skila rafrænt á þar til gerðu eyðublaði til velferðar­ráðuneytisins.

Telji velferðarráðuneytið að umsókn sé ófullnægjandi eða að upplýsingar vanti skal það leiðbeina umsækjanda um hvaða upplýsingar vantar og gefa honum hæfilegan frest til úrbóta. Sé nauðsyn­legum gögnum ekki skilað innan frests skal umsókn hafnað. 

5. gr.

Skilyrði starfsleyfis.

Til þess að umsækjandi fái útgefið starfsleyfi samkvæmt reglugerð þessari skal hann uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Umsækjandi og starfsmenn hans hafi ekki hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Hafi viðkomandi verið dæmdur til refsingar fyrir brot á öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga skal meta áhrif þess á hæfi viðkomandi til að gegna því starfi sem um ræðir, meðal annars að teknu tilliti til eðlis starfseminnar og alvarleika brotsins.
  2. Húsnæði fullnægi kröfum laga og reglugerða um aðgengi og á sviði hollustuhátta og byggingar- og brunamála og með tilliti til fyrirhugaðrar starfsemi og fjölda notenda sem áformað er að njóti þjónustunnar.
  3. Lögð sé fram rekstraráætlun sem tilgreini leiðir til öflunar rekstrarfjár og fyrirhugaða nýtingu þess.
  4. Umsækjandi uppfylli að öðru leyti kröfur laga og reglugerða eftir því sem við á um rekst­ur­inn og þjónustuna, svo sem um aðbúnað starfsmanna, áhættumat og reikningsskil.
  5. Ekki liggi fyrir önnur málefnaleg sjónarmið sem mæla gegn veitingu starfsleyfis með tilliti til þess rekstrar sem um ræðir og starfsleyfið nær til.

6. gr.

Útgáfa starfsleyfis.

Ráðuneytið skal afla umsagnar notendaráða í því sveitarfélagi þar sem starfsemin er, áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til afgreiðslu. Ef fyrirhugað er að reka starfsemi á fleiri en einu svæði skal afla umsagna frá notendaráði á hverju svæði fyrir sig.

Tilkynna skal umsækjanda um starfsleyfi ákvörðunina skriflega og upplýsa um heimild til að krefjast rökstuðnings fyrir henni.

Séu skilyrði 5. gr. reglugerðar þessarar uppfyllt er gefið út starfsleyfi.

Starfsleyfi skulu almennt vera ótímabundin. Þó er heimilt að veita starfsleyfi til tiltekins tíma eða binda leyfið við tiltekinn árstíma mæli eðli starfseminnar með því eða starfsleyfið sé veitt með skilyrðum sem þarf að uppfylla innan tiltekins tíma. Hefjist starfsemi leyfishafa ekki innan eins árs frá dagsetningu útgáfu starfsleyfis fellur leyfið úr gildi.

7. gr.

Umfang starfsleyfis.

Starfsleyfi samkvæmt reglugerð þessari skal gefið út á nafn umsækjanda. Það heimilar eingöngu þjónustu af þeirri tegund og í því húsnæði sem þar er tilgreint og eftir atvikum á þeim árstíma sem tilgreindur er í leyfinu.

III. KAFLI

Breytingar á leyfisskyldri starfsemi.

8. gr.

Breytingar á starfsemi og framsal réttinda.

Starfsleyfishafa ber að veita velferðarráðuneytinu upplýsingar um breytingar sem kunna að verða á rekstri eða skipulagi, sem hefur áhrif á þjónustustig starfseminnar, án tafa. Sé þjónustan veitt á grundvelli þjónustusamnings við sveitarfélag skal jafnframt upplýsa það um breytingarnar.

Ráðuneytið metur upplýsingar skv. 1. mgr. innan fjögurra vikna frá móttöku þeirra og tilkynnir starfsleyfishafa skriflega hvort nauðsynlegt sé að gefa út nýtt starfsleyfi. Ber þá umsækjanda að leggja fram umsókn þess efnis í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar þessarar.

Starfsleyfishafa er óheimilt að semja við þriðja aðila um að annast einhverja þá þætti sem liggja til grundvallar veitingu starfsleyfis nema viðsemjandi hafi gilt starfsleyfi til þess þáttar sem um ræðir. Starfsleyfishafa er þó heimilt að semja við þriðja aðila um að annast afmarkaða rekstrar- eða þjónustuþætti sem ekki liggja til grundvallar veitingu starfsleyfis.

Taki nýr rekstraraðili við starfsemi sem hefur gilt starfsleyfi er ráðuneytinu heimilt, að fenginni umsókn þar um, að færa starfsleyfið á nýjan rekstraraðila án þess að gefið verði út nýtt starfsleyfi enda verði engin önnur breyting á starfseminni. Með því færast öll skilyrði, réttindi og skyldur sem felast í starfsleyfinu yfir á nýja leyfishafann og skal starfsleyfið fært yfir á nafn hans.

9. gr.

Aðilar þegar í rekstri.

Þeim félagasamtökum, sjálfseignarstofnunum og öðrum einkaaðilum sem við gildistöku reglugerðar þessarar veita þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga ber að sækja um starfsleyfi á grundvelli reglugerðar þessarar innan sex mánaða frá gildistöku hennar.

10. gr.

Tilkynning um lok starfsemi.

Þegar starfsleyfishafi tekur ákvörðun um að hætta starfsemi ber honum að tilkynna það til ráðu­neytisins án ástæðulauss dráttar og fellur starfsleyfi úr gildi þegar starfsemi er hætt.

11. gr.

Afturköllun starfsleyfis.

Liggi fyrir upplýsingar um að starfsleyfishafi vanræki skyldur sínar gagnvart notendum þjón­ust­unnar eða aðrir annmarkar séu á starfsemi starfsleyfishafa skal velferðarráðuneytið tilkynna starfs­leyfis­hafa og viðkomandi sveitarfélagi eða félagsþjónustusvæði um það skriflega, tilgreina hverjir ann­markarnir eru og eftir atvikum með hvaða hætti skuli bætt úr, innan tilgreindra tímamarka. Hafi ekki verið bætt úr tilgreindum annmörkum innan veitts tímafrests getur velferðar­ráðuneytið afturkallað útgefið starfsleyfi.

Sé um að ræða alvarlega annmarka á starfsemi starfsleyfishafa að mati ráðuneytisins skal aftur­kalla starfsleyfi samstundis og stöðvast þá starfsemin. 

12. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, öðlast gildi 7. nóvember 2018.

Velferðarráðuneytinu, 7. nóvember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Ellý Alda Þorsteinsdóttir.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica