Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. des. 2022

1658/2021

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 137.632 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

2. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 83.233 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

3. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 eða síðar:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 143.963 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

4. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 eða síðar:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 87.062 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.