Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2022

1333/2020

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2021.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2021:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 266.033 3.192.396
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 133.017 1.596.198
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr. 49.840 598.080
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr. 36.845 442.140
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr. 49.840 598.080
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr. 36.845 442.140
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr. 49.840 598.080
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 159.604 1.915.248
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr. 79.859 958.308
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 3.879
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr. 36.845 442.140

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2021:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. 10.667 128.004
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. 27.733 332.796
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr. 36.845 442.140
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 199.361 2.392.332
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 167.554 2.010.648
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. 54.881 658.572
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. 41.111 493.332
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr. 49.840 598.080
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. 67.225 806.700
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. 53.948 647.376
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr. 18.421 221.051

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1121/2019, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2020.

Félagsmálaráðuneytinu, 21. desember 2020.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.