Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2022

1296/2020

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 472.835 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Við útreikning á atvinnuleysisbótum fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 299.933 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 2. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 73.827 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, gildir um fjárhæð atvinnuleysistrygginga sem reiknast fyrir tímabilið frá og með 1. janúar 2021 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2021. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1236/2019, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 2. gr. skal sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar eiga rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 307.430 kr. á mánuði á tímabilinu 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021 í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Félagsmálaráðuneytinu, 7. desember 2020.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.