Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

1124/2019

Reglugerð um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2020.

1. gr. Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á árinu 2020.

Orlofsuppbætur skulu greiddar 1. júlí og desemberuppbætur skulu greiddar 1. desember.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Orlofsuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 20% af fjárhæð tekjutryggingar lífeyrisþega skv. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og fjárhæð heimilisuppbótar örorkulífeyrisþega skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.

Desemberuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 30% af fjárhæð tekjutryggingar og heimilisuppbótar lífeyrisþega, sbr. 1. mgr. Fjárhæð desemberuppbótar reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2020.

3. gr. Eingreiðslur til ellilífeyrisþega.

Full eingreiðsla til ellilífeyrisþega skal nema 96.829 kr. Skal 40% eingreiðslu greiðast 1. júlí sem orlofsuppbót og 60% fjárhæðarinnar 1. desember sem desemberuppbót.

Eingreiðsla skal lækka um 2% af tekjum lífeyrisþega, sbr. 16. og 23. gr. laga um almannatryggingar, uns hún fellur niður. Þeir sem fá greiddan hálfan ellilífeyri skulu fá 50% af fjárhæð skv. 1. mgr.

Um áhrif búsetu, frestun og flýtingu á töku lífeyris á fjárhæð eingreiðslna skv. 1. mgr. fer skv. 17. gr. laga um almannatryggingar.

Hafi ellilífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skulu eingreiðslur til hans skv. 1. mgr. greiddar í hlutfalli við greiðsluréttindi hans.

Ef fyrir liggur að eingreiðsla í júlí hafi verið of- eða vangreidd skal það leiðrétt við eingreiðslu desembermánaðar og gilda ákvæði 55. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við á.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1199/2018, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2019.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.