Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

1122/2019

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2020.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr. 98.640
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna
skv. ákvæði til bráðabirgða 1.315.200
c. Ellilífeyrir, almennt skv. 3. málsl. 1. mgr. 23. gr. 300.000 7.147.707
d. Ellilífeyrir, vegna atvinnutekna
skv. 4. málsl. 1. mgr. 23. gr. 1.200.000
e. Hálfur ellilífeyrir skv. 2. mgr. 23. gr. 3.900.000 7.323.867
f. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 4.884.404
g. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.851.380
h. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 4.884.404
i. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)
skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220 4.884.404
j. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna
skv. 3. mgr. 22. gr. 328.800
k. Ráðstöfunarfé skv. 3. málsl. 8. mgr. 48. gr. 1.423.089

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 2.575.220 4.884.404
b. Heimilisuppbót, almennt skv. 2. mgr. 8. gr. 300.000 6.843.429
c. Heimilisuppbót, vegna atvinnutekna skv. 2. mgr. 8. gr. 1.200.000
d. Heimilisuppbót með hálfum ellilífeyri 3.900.000 7.171.765
e. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.
Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót 321.678
Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót 255.834

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr. 3.032.114

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur. Efra tekjumark:Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1205/2018, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.