Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Stofnreglugerð

1125/2005

Reglugerð um innköllun þriggja seðlastærða.

1. gr.

Eftirtaldar seðlastærðir skulu innkallaðar: 10 krónur, 50 krónur og 100 krónur.

2. gr.

Frestur til að afhenda seðla, sem greindir eru í 1. gr., skal vera 12 mánuðir frá birtingu auglýsingar um innköllunina. Á innköllunarfrestinum skulu allir bankar og sparisjóðir skyldugir að taka við þessum seðlum og láta í staðinn peninga sem ekki á að innkalla. Seðlar þeir, sem greindir eru í 1. gr., eru á innköllunarfrestinum lögmætur gjaldmiðill í lögskiptum manna, en hætta að vera lögmætur gjaldmiðill að frestinum liðnum. Seðlabanka Íslands er þó skylt að innleysa seðlana, sem greindir eru í 1. gr., í ekki skemmri tíma en 12 mánuði eftir lok 12 mánaða frestsins, sem greindur er í fyrsta málslið þessarar greinar.

3. gr.

Seðlabanki Íslands annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 10. gr. laga um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968, öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 25. nóvember 2005.

Halldór Ásgrímsson.

Bolli Þór Bollason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.