Mennta- og menningarmálaráðuneyti

114/2010

Reglugerð um Þjóðmenningarhúsið.

1. gr.

Hlutverk.

Þjóðmenningarhúsið skal þjóna sem vettvangur til að kynna íslenska sögu og menningararf. Jafnframt skal þar látin í té aðstaða fyrir sýningar, fundi, samkomur og aðra viðburði. Notkun hússins skal þó ætíð taka tillit til friðunar þess og sögulegs verðmætis.

2. gr.

Sýningahald.

Starfsemi í húsinu skal einkum felast í sýningahaldi, bæði föstum sýningum og styttri sýningum. Í sýningum skal einkum lögð áhersla á sögu og menningu þjóðarinnar, sjálfstæði landsins og stjórnskipun og bókmenntir þjóðarinnar fyrr og síðar.

Hafa skal samstarf við opinber söfn og stofnanir sem sinna menningarsögu eftir því sem kostur er, m.a. með því að efna til sýninga í samvinnu við aðrar stofnanir, félagasamtök og einkaaðila innanlands, svo og erlenda sýningahaldara.

3. gr.

Önnur starfsemi.

Heimilt er að leigja stofur og sal Þjóðmenningarhússins til funda og annarra samkoma. Um afnot af sal gilda eftirfarandi takmarkanir:

  1. Sýningar. Salurinn er einkum ætlaður til sýningahalds. Almennt skal miða við að sýningar þar séu til skemmri tíma og hægt að víkja þeim til hliðar til að rýma fyrir öðrum afnotum af salnum.
  2. Fundir o.þ.h. Leigja má salinn fyrir fundi, ráðstefnur og minni samkomur. Jafnan skal innheimt gjald fyrir slík afnot.
  3. Móttökur o.þ.h. Leigja má salinn fyrir móttökur á vegum ráðuneyta eða Alþingis að því tilskildu að viðkomandi ráðherra eða forseti Alþingis sé viðstaddur.
  4. Veislur og borðhald. Veita má afnot af salnum fyrir veislur og borðhald með sömu skilyrðum og um getur í staflið c.
  5. Gjaldskrá. Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss setur gjaldskrá fyrir afnot af salnum. Skal hún staðfest af mennta- og menningarmálaráðuneyti.

4. gr.

Stjórn.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar þrjá menn í stjórn Þjóðmenningarhússins til fjögurra ára í senn. Skal einn þeirra tilnefndur af forsætisráðherra og annar af fjármálaráðherra.

Stjórn Þjóðmenningarhússins leggur megináherslur í starfsemi hússins og mótar í því skyni langtímastefnu um sýningar og aðra starfsemi þar.

5. gr.

Forstöðumaður.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar forstöðumann Þjóðmenningarhússins til fimm ára í senn.

Forstöðumaður ber ábyrgð á þeirri starfsemi sem fram fer í húsinu, rekstri þess og fjárhag. Hann upplýsir stjórn Þjóðmenningarhúss um fjárhagsmálefni og rekstur hússins.

Forstöðumaður undirbýr stefnumörkun stjórnar, sbr. 2. mgr. 4. gr., og ber ábyrgð á framkvæmd hennar.

Forstöðumaður skal leitast við að efla samvinnu stofnana á sviði lista og menningarmála. Í því skyni skal honum vera heimilt að kveðja fulltrúa þeirra sér til samráðs.

6. gr.

Starfsfólk.

Forstöðumaður ræður starfsfólk og ákveður starfssvið þess í samræmi við þarfir stofnunarinnar. Skrifstofustjóri skal vera staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur þá úr gildi samnefnd reglugerð nr. 265/2003, sbr. reglugerð nr. 812/2009.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. febrúar 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica