Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

249/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2004, um greiðslu barnabóta, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað "16" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 18.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "16" í 1. mgr. kemur: 18.
  2. 5. mgr. orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar má ákvarða barnabætur með börnum sem ekki eru heimilisföst hér á landi en eru á framfæri ríkisborgara hins Evrópska efnahagssvæðis, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda sé framfærandi skattskyldur hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, eða tryggður á grundvelli 12., 13. eða 14. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar. Sá sem rétt kann að eiga til barnabóta með börnum sem ekki hafa heimilisfesti á Íslandi skal sækja um bætur til skattstjóra og leggja fram upplýsingar frá bærum stjórnvöldum um tekjur framfærenda ásamt upplýsingum um barnabætur eða hliðstæðar greiðslur vegna sömu barna sem greiddar hafa verið erlendis.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "46.747" í 1. mgr. kemur: 57.891.
  2. Í stað "16", "139.647", "166.226", "232.591" og "238.592" í 2. mgr. kemur: 18, 144.116, 171.545, 240.034 og 246.227.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðanna "1.859.329" og "929.665" í 1. mgr. kemur: 2.415.492 og 1.207.746.
  2. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Þá skulu tekjur sem maki framfæranda barns skv. 1. málsl. 7. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, aflar erlendis reiknast með tekjuskattsstofni samkvæmt þessari grein.
  3. Í stað hlutfallanna "3%", "7%" og "9%" í 2. mgr. kemur: 2%, 6% og 8%.
  4. Í stað orðanna "framfærandi hefur fengið" í 3. mgr. kemur: greiddar hafa verið.

5. gr.

Orðin "og eignarskatt" í 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.

6. gr.

Í stað "16" í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 18.

7. gr.

Orðin "og eignarskatt" í 8. gr. reglugerðarinnar falla brott.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 22. febrúar 2008.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.