Fjármálaráðuneyti

589/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 13/2003, um skil á staðgreiðslu útsvars, tekjuskatts og tryggingagjalds.

1. gr.

Orðin "Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli" í 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 20. og 21. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum og 24. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 9. júní 2008.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica