Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 25. feb. 2022

162/2006

Reglugerð um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár og almannaheillafélagaskrár.

I. KAFLI Gjaldtaka fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár og almannaheillafélagaskrár.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal taka gjald fyrir skráningu í fyrirtækjaskrá, hlutafélagaskrá, samvinnufélagaskrá, almannaheillafélagaskrá o.fl. og fyrir vottorð og afhendingu upplýsinga úr skránum eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla.

2. gr.

1. Skráningargjald og útgáfa kennitölu í fyrirtækjaskrá kr. 5.000
2. Tölvuskráð útskrift um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög, almannaheillafélög o.fl. kr. 700
3. Vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög, almannaheillafélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum kr. 1.000
4. Sérvottorð kr. 1.800
5. Fyrir hverja ljósritaða blaðsíðu allt að 20 kr. 50
6. Fyrir hverja ljósritaða blaðsíðu umfram 20 kr. 40

3. gr.

Við skráningu í fyrirtækjaskrá, skv. 1. tölul. 2. gr. skal auðkenna skráðan aðila með kennitölu. Menn með eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skulu þó auðkenndir í fyrirtækjaskrá með kennitölu þeirra samkvæmt þjóðskrá.

4. gr.

Í vottorði skv. 3. tölul. 2. gr. kemur fram heiti félags, heimilisfang, kennitala og póstfang. Jafnframt eru útibú tilgreind ef til eru. Þá er getið um rekstrarform, stjórn félagsins, framkvæmdastjóra, prókúruhafa, hverjir riti firmað, endurskoðendur og atvinnugreinaflokkun. Hlutafé eða stofnfé er tilgreint, lausnarskylda á hlutum og hömlur á meðferð hlutabréfa ef við á. Tilgangi félagsins er einnig lýst.

5. gr.

Í sérvottorði skv. 4. tölul. 2. gr. koma fram sérgreindar umbeðnar upplýsingar um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög og almannaheillafélög, sem teknar eru saman sérstaklega í hverju einstöku tilviki.

6. gr.

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænt afrit af gagnagrunni fyrirtækjaskrár til eigin nota og/eða miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránni til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

Fyrir afrit af fyrirtækjaskrá:

1. Árgjald fyrir rafrænt afrit gagna úr fyrirtækjaskrá kr. 100.800

Fyrir úrtak sem inniheldur nöfn og heimilisföng fyrirtækja:

1. Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri kr. 3.500
2. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000 kr. 5
3. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000 kr. 3

Fyrir rafræna miðlun (uppflettingu):

1. Fyrir hverja rafræna uppflettingu í afriti gagnagrunns kr. 4

Fyrir afrit af fyrirtækjaskrá til miðlunar um miðlægt upplýsingakerfi:

1. Þegar 5 fyrirtæki eða færri fá aðgang að skránni er árgjald fyrir hvert þeirra kr. 100.800
2. Árgjald næstu 5 fyrirtækja sem fá aðgang að skránni er fyrir hvert þeirra kr. 50.400
3. Árgjald vegna hvers fyrirtækis umfram 10 sem fá aðgang að skránni er fyrir hvert þeirra kr. 25.200

Fyrir úrtak sem að auki inniheldur nöfn framkvæmdastjóra/forráðenda:

1. Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri kr. 5.000
2. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000 kr. 7
3. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000 kr. 5

7. gr.

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænan aðgang að gagnagrunni hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár og almannaheillafélagaskrár og heimild til miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránum til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

1. Árgjald miðlara sem innifelur 600 uppflettingar í gagnagrunninum kr. 180.000
2. Fyrir hverja uppflettingu allt að 2.500 á mánuði kr. 300
3. Fyrir hverja uppflettingu umfram 2.500 og allt að 5.000 á mánuði kr. 285
4. Fyrir hverja uppflettingu umfram 5.000 og allt að 7.500 á mánuði kr. 270
5. Fyrir hverja uppflettingu umfram 7.500 og allt að 15.000 á mánuði kr. 255
6. Fyrir hverja uppflettingu umfram 15.000 á mánuði kr. 240
7. Fyrir afrit af heildarskrá yfir hlutafélög og/eða samvinnufélög og/eða almannaheillafélög skal greiða fyrir hvert félag í skránni kr. 240
8. Fyrir hverja uppfærslu á félagi í heildarskrá, sbr. 7. tl., skal greiða kr. 300
9. Fyrir hverja uppflettingu aukatilkynninga samþykkta, stofnsamninga og stofnfundargerða kr. 1.000

II. KAFLI Gjöld í ríkissjóð.

8. gr.

Ríkisskattstjóri skal á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991, með síðari breytingum, innheimta í ríkissjóð gjöld sem hér segir:

1. Fyrir skráningu hlutafélags og samvinnufélags kr. 165.000
2. Fyrir skráningu erlends félags (útibús) kr. 165.000
3. Fyrir skráningu einkahlutafélags og sjálfseignarstofnunar sem stundar atvinnurekstur kr. 82.500
4. Fyrir umskráningu einkahlutafélags í hlutafélag kr. 82.500
5. Fyrir umskráningu hlutafélags í einkahlutafélag kr. 5.500
6. Fyrir aukatilkynningu og skráningu breytinga kr. 1.100

III. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, 22. gr. laga nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs með síðari breytingum, 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 með síðari breytingum, 2. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum og 2. mgr. 10. gr. laga um samvinnufélög nr. 22/1991, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 474/2003, um útgáfu kennitölu við skráningu í fyrirtækjaskrá og reglugerð nr. 94/1998, um aðgang að hlutafélagaskrá og samvinnufélagaskrá og gjaldtöku.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.