Fjármálaráðuneyti

345/2006

Reglugerð um Tollskóla ríkisins og ráðningu, setningu og skipun í störf við tollendurskoðun og tollgæslu. - Brottfallin

I. KAFLI
Hlutverk Tollskóla ríkisins, stjórn og starfslið.

1. gr.
Hlutverk Tollskóla ríkisins.

Við embætti tollstjórans í Reykjavík skal starfræktur Tollskóli ríkisins.

Tollskólinn veitir nemendum menntun í almennum tollfræðum.

Tollskólinn veitir starfandi tollstarfsmönnum símenntun, framhaldsmenntun og sérmenntun.

Tollskólinn heldur námskeið um ýmis atriði á sviði tollmála fyrir þá sem eiga í samskiptum við tollyfirvöld.

2. gr.
Stjórn tollskólans og starfslið.

Tollstjórinn í Reykjavík veitir tollskólanum forstöðu og ræður skólastjóra, kennara og annað starfslið til skólans.

Skólastjóri annast daglega stjórn og rekstur skólans og ber ábyrgð á faglegu starfi innan hans.

Skólanefnd skal skipuð tollstjóranum í Reykjavík eða fulltrúa hans, fulltrúa Sýslumannafélags Íslands og fulltrúa Tollvarðafélags Íslands. Tollstjórinn í Reykjavík, eða fulltrúi hans, skal vera formaður skólanefndar. Skólastjóri situr fundi skólanefndar.

Skólanefnd skal vera ráðgefandi um starfsemi skólans. Nefndin skal vera vettvangur skoðanaskipta um námsefni, reglur skólans og skyld efni.

II. KAFLI
Almennt nám við Tollskóla ríkisins.

3. gr.
Inntökuskilyrði.

Tollstjórar ákveða að höfðu samráði við skólastjóra svo fljótt sem því verður við komið hvenær starfsmenn, sem hafa verið settir í störf tollvarða eða ráðnir í störf við tollendurskoðun, skuli þreyta inntökupróf í tollskólann. Skólastjóri tilkynnir um framkvæmd inntökuprófa hverju sinni í samráði við skólanefnd.

Tollstarfsmaður í tollgæslu skal hafa hafið almennt nám við tollskólann innan tveggja ára frá setningu hans.

Ákvæði 1. og 2. mgr. eiga ekki við um tollverði sem eru settir til afleysinga.

4. gr.
Réttindi og skyldur nemenda við tollskólann.

Tollstarfsmenn sem kvaddir eru til náms við tollskólann skulu vera launaðir á meðan á námi stendur. Lög nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda um tollstarfsmenn í námi.

Nemendur skulu lúta reglum skólans meðan á námsdvöl þeirra stendur. Skólastjóri setur almennar reglur um hegðun, mætingu, klæðaburð og hvernig með skuli fara ef reglum er ekki fylgt, þ.m.t. reglur um tímabundna og varanlega brottvikningu nemenda úr skólanum.

5. gr.
Tilhögun náms og námsskrá.

Almennu námi við tollskólann skal skipt í kjarnanám, sbr. 6. og 7. gr., og starfsnám, sbr. 8. gr.

Kennslustundir í kjarnanámi skulu vera a.m.k. 950 og vera í samræmi við námsskrá skólans, sbr. 3. mgr. Náminu er skipt í fyrri og seinni hluta samkvæmt ákvörðun skólastjóra að höfðu samráði við skólanefnd.

Skólastjóri skal gefa út námskrá fyrir skólann þar sem tilgreindar eru þær námsgreinar sem eru kenndar í kjarnanámi hverju sinni, sbr. 6. og 7. gr.

Skólastjóra er heimilt, í samráði við viðkomandi tollstjóra, að veita nemendum leyfi til þess að stunda kjarnanám við skólann, að hluta eða að öllu leyti, í fjarnámi.

6. gr.
Námsgreinar.

Eftirfarandi námsgreinar eru ávallt kjarnafög í almennu námi við tollskólann. Þó er ekki gert ráð fyrir að nemendur í tollendurskoðun sæki námskeið í löggæsluæfingum, hjálp í viðlögum og verklegum æfingum:

1. Tollalöggjöf og stjórnkerfið: Nemendum skulu kynnt í grundvallaratriðum ákvæði laga um tollamál. Áhersla skal lögð á almenna fræðslu um skipan tollamála innan stjórnkerfisins og aðrar þær grundvallarreglur er þar að lúta, s.s. reglur um meðferð opinberra mála. Einnig skal farið yfir starfsheimildir tollgæslumanna.

2. Tollflokkun og tollafræði: Nemendum skal veitt fræðsla um uppbyggingu flokkunarkerfis tollskrárinnar, meginreglur um flokkun vara í tollskránni og notkun helstu skýringarrita. Farið skal yfir helstu reglur sem gilda um afhendingu og frágang tollskýrslu, vörureiknings og annarra fylgiskjala. Kennd skulu undirstöðuatriði við ákvörðun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Þá skal farið yfir samninga við erlend ríki á sviði tollamála.

3. Tollgæslufræði: Nemendum skal gerð grein fyrir starfssviði tollgæslunnar og helstu eftirlitsþáttum sem tengjast samgöngum við landið. Kynntar skulu í meginatriðum þær aðferðir er tollgæslan beitir við eftirlitsstörf, m. a. til þess að hindra ólöglegan inn- og útflutning.

4. Tungumál: Áhersla skal lögð á að æfa nemendur í réttritun íslensku, liðlegri setningaskipan og setningu greinarmerkja svo og að kynna þeim undirstöðuatriði í málfræði hennar. Gera skal nemandann hæfan til að tjá sig bæði munnlega og skriflega. Kennd skulu erlend tungumál eftir því sem þurfa þykir.

5. Skýrslugerð: Kennd skulu grundvallaratriði skýrslugerðar. Farið skal yfir niðurröðun efnis, málfar og efnisatriði frumskýrslna. Þá skal farið yfir eftirtalin atriði: Tilgang skýrslugerðar, notkun skýrslueyðublaða og niðurröðun efnis, vörulýsingu, móttöku og sendingu tilkynninga, réttarstöðu vitna og grunaðra, vettvangslýsingu og skráningu, röðun og vistun skjala.

6. Leikfimi/löggæsluæfingar: Nemendur skulu fá líkamlega þjálfun í því augnamiði að auka hæfni þeirra til þess að framfylgja lögum og reglu með festu og með valdi ef nauðsyn ber til. Kennd skulu undirstöðuatriði við handtöku og sjálfsvörn.

7. Hjálp í viðlögum: Nemendur skulu fá kennslu og æfingu í viðbrögðum við björgun manna frá drukknun, skyndihjálp og áfallahjálp.

8. Verklegar æfingar: Nemendur skulu hljóta þjálfun í framkvæmd ýmissa tollgæsluaðgerða, upplýsinga- og áhættugreiningu og meðferð og beitingu tollgæslutækja.

7. gr.
Aðrar námsgreinar.

Skólastjóri kveður nánar á um námsefni í kjarnanámi, sbr. ákvæði um lengd kjarnanáms og námskrá í 5. gr. Skólastjóri skal hafa samráð við skólanefnd við ákvörðun annarra námskeiða í kjarnanámi en námskeiða skv. 6. gr. og í því efni skal tekið mið af þörfum og áherslum hjá tollstjórum hverju sinni.

8. gr.
Starfsnám.

Nemanda skal séð fyrir starfsnámi í a.m.k. 6 mánuði þar sem áhersla er lögð á sem víðtækasta kynningu og þjálfun í að takast á við hin ýmsu verkefni tollheimtu og tolleftirlits. Starfsnám skal fara fram að hluta til, verði því við komið, við eitt hinna stærri tollembætta sem skipað er fjölmennu liði tollstarfsmanna.

Starfsnám skal skipulagt af skólastjóra í samráði við viðkomandi tollstjóra. Skal því hagað í samræmi við reglur skólans.

Á starfsþjálfunartíma skal yfirmaður gefa skólanum skýrslu um starfsnám nemanda, m.a. um framfarir hans og annað sem máli kann að skipta um starfshæfni.

9. gr.
Lokaumsögn og prófkröfur.

Gert er ráð fyrir að hver nemandi fái lokaumsögn að námi loknu. Þar skal koma fram mat skólans á færni, kunnáttu og framkomu hvers nemanda.

Í lok hvers námskeiðs skulu nemendur prófaðir og þeim gefin einkunn í heilum og hálfum tölum frá 1-10. Til þess að standast próf þarf nemandi að fá einkunnina 6 hið minnsta í hverri grein. Fyrir verklega þjálfun, þ.m.t. starfsnám, má gefa tvær einkunnir, fullnægjandi eða ófullnægjandi.

Nemanda er heimilt að taka upptökupróf í þeim námsgreinum sem hann fékk undir 6,0 í einkunn í einu sinni.

Skrifleg próf dæmir hlutaðeigandi kennari einn. Nemandi á rétt á að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar, ef hann æskir þess innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Vilji nemandi ekki una mati kennarans, getur hann snúið sér til skólastjóra. Ef skólastjóri telur, að höfðu samráði við skólanefnd, að útskýringar kennara séu ekki fullnægjandi skipar hann prófdómara.

Við munnleg próf skal vera prófdómari sem skólastjóri skipar.

Kennarar eða meirihluti nemenda geta óskað skipunar prófdómara í einstökum prófum, hvort sem er munnlegum eða skriflegum, telji þeir til þess sérstaka ástæðu.

Þegar prófdómari er skipaður, skulu hann og viðkomandi kennari dæma úrlausn eða frammistöðu í sameiningu. Hvor um sig gefur sjálfstætt einkunn fyrir úrlausn, eða metur frammistöðu, og vegur einkunn þeirra eða mat jafnt við lokaeinkunnagjöf. Skólastjóri setur nánari reglur um framkvæmd prófa.

10. gr.
Námskeið á vegum annarra skólastofnana.

Skólastjóra er heimilt í samráði við viðkomandi skólayfirvöld að láta kennslu og próf í einstökum námsgreinum fara fram í almennum skólum og sérskólum skólakerfisins telji hann kennslu betur fyrir komið með þeim hætti.

III. KAFLI
Annað nám við Tollskóla ríkisins.

11. gr.
Símenntun, framhaldsmenntun og sérmenntun.

Tollskólinn skal halda styttri og lengri námskeið til þess að veita starfandi tollstarfsmönnum símenntun, framhaldsmenntun og sérmenntun eftir því sem þurfa þykir. Þá er skólanum heimilt að halda námskeið fyrir ýmsa aðila sem starfa að tollamálum með einhverjum hætti.

12. gr.
Símenntun.

Tollverðir og þeir sem starfa að tollendurskoðun skulu eftir því sem við verður komið eiga kost á símenntun innan fimm ára frá því að þeir luku námi við tollskólann og síðan á a.m.k. 5 ára fresti. Á símenntunarnámskeiðum skulu kynntar helstu lagabreytingar og nýjungar sem snerta störf tollvarða og þeirra sem starfa við tollendurskoðun, svo að þeir geti tileinkað sér þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til þess að takast á við störf sín á hverjum tíma.

Tollverðir og þeir sem starfa að tollendurskoðun skulu jafnframt eiga þess kost að sækja valin námskeið úr almennu námi við skólann í samráði við skólastjóra. Einnig skulu haldin námskeið til upprifjunar námsefnis í kjarnanámi eftir því sem þörf er á.

13. gr.
Framhaldsmenntun.

Framhaldsmenntun tollstarfsmanna skal miða að því að gera tollstarfsmenn hæfa yfirmenn á sínu starfssviði. Námsefni skal ákveðið af skólastjóra og skólanefnd, sem ákveður fjölda nemenda.

14. gr.
Sérmenntun.

Námskeið fyrir tollstarfsmenn í sérgreinum á sviði tollheimtu og tolleftirlits skulu haldin þegar þurfa þykir að mati skólastjóra og skólanefndar. Á sérmenntunarnámskeiðum skal leitast við að efla hæfni og skilning þátttakenda á sérsviðum þeirra.

15. gr.
Námskeið fyrir aðra en tollstarfsmenn.

Tollskólinn heldur reglulega námskeið fyrir aðra en tollstarfsmenn um ýmis atriði er lúta að samskiptum við tollyfirvöld, s.s. um atriði er lúta að rafrænum samskiptum. Þá er skólastjóra heimilt að veita öðrum aðgang að völdum námskeiðum í kjarnanámi við skólann.

IV. KAFLI
Um skipun, setningu og ráðningu í störf við tollendurskoðun og tollgæslu.

16. gr.
Almenn hæfisskilyrði.

Þeir sem ráðnir verða í störf við tollendurskoðun eða settir verða í störf tollvarða, þ.m.t. til afleysinga, skulu auk almennra skilyrða 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fullnægja eftirtöldum skilyrðum:

  1. Hafa náð 20 ára aldri.
  2. Hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms.
  3. Hafa gott vald á íslensku og einu Norðurlandamáli auk ensku.

Þeir sem settir verða í störf tollvarða skulu uppfylla eftirtalin skilyrði, auk skilyrða 1. mgr.:

  1. Hafa almenn réttindi til bifreiðaaksturs.
  2. Vera syndir.
  3. Vera andlega og líkamlega heilbrigðir og skal þeim skylt að skila inn læknisvottorði því til staðfestingar.

Heimilt er að víkja frá einstökum skilyrðum 1. mgr. og 2. mgr. ef sérstakar ástæður mæla með því.

17. gr.
Skipun í störf tollvarða.

Til að fá skipun sem tollvörður verður umsækjandi eða starfandi tollvörður að hafa staðist próf frá tollskólanum eða hlotið sambærilega menntun.

V. KAFLI
Önnur ákvæði.

18. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 12. tl. 43. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 85/1983, um Tollskóla ríkisins, veitingu í fastar tollstöður o. fl., með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Um þá sem við gildistöku reglugerðar þessarar eru nemendur í tollskóla ríkisins gildir eftirfarandi:

Skólastjóri skal meta námskeið, sem nemendur hafa lokið við gildistöku reglugerðar þessarar, sem hluta af námi við tollskólann eins og það er skipulagt samkvæmt reglugerðinni.

Fjármálaráðuneytinu, 18. apríl 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Lilja Sturludóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica