Fjármálaráðuneyti

961/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 391/1998, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 4. málsl. 20. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi: né lægri en 3,5% ef vextir bréfanna eru hærri en 3,5% á uppgjörsdegi eða lægri en vextir bréfanna eru á uppgjörsdegi ef vextir þeirra eru þá 3,5% eða lægri.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 9. nóvember 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica