Fjármála- og efnahagsráðuneyti

119/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 331/2000, um vörugjald af ökutækjum.

1. gr.

1. málsl. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Vörugjald skal falla niður af ökutækjum sem flutt eru inn til starfsemi björgunarsveita enda liggi fyrir staðfesting landssamtaka björgunarveita á að viðkomandi ökutæki verði einungis nýtt í starf­semi björgunarsveita.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. janúar 2024.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica