Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 20. des. 2022

555/2004

Reglugerð um greiðslu barnabóta.

1. gr. Almennt.

Ríkissjóður skal greiða barnabætur vegna hvers barns innan 18 ára aldurs til framfæranda barnsins eins og nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

2. gr. Réttur til barnabóta.

Greiða skal barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu, sem heimilisfast er hér á landi og er á framfæri þeirra manna sem skattskyldir eru skv. 1. gr. laga nr. 90/2003.

Framfærandi barns samkvæmt 1. mgr. telst sá sem hefur barnið hjá sér og annast framfærslu þess í lok tekjuárs. Sá er greiðir meðlag með barni telst ekki framfærandi í þessu sambandi. Skilyrði 1. málsl. eru uppfyllt þótt barnið dvelji tímabundið fjarri raunverulegu heimili, t.d. vegna náms.

Hjón, sem skattlögð eru skv. 62. gr. laga nr. 90/2003, teljast bæði framfærendur og skiptast barnabætur milli þeirra til helminga. Hið sama gildir um sambúðarfólk sem uppfyllir í lok tekjuárs skilyrði 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, enda þótt það óski ekki eftir að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein. Að sama skapi teljast þeir sem halda heimili saman ásamt barni sínu framfærendur í skilningi ákvæðisins þótt skilyrði til skráningar á sambúð séu ekki uppfyllt. Við slíkar aðstæður skal ákvarða barnabætur eins og um hjón sé að ræða.

Sé svo ástatt að einungis annað hjóna er skattskylt hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, skal reikna því fullar barnabætur vegna þeirra barna hjónanna sem dveljast hér á landi eftir þeim reglum sem gilda um hjón enda liggi fyrir upplýsingar um tekjur beggja ásamt upplýsingum um fengnar barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis vegna sömu barna.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar má ákvarða barnabætur með börnum sem ekki eru heimilisföst hér á landi en eru á framfæri ríkisborgara hins Evrópska efnahagssvæðis, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda sé framfærandi skattskyldur hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, eða tryggður á grundvelli 12., 13. eða 14. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar. Sá sem rétt kann að eiga til barnabóta með börnum sem ekki hafa heimilisfesti á Íslandi skal sækja um bætur til ríkisskattstjóra og leggja fram upplýsingar frá bærum stjórnvöldum um tekjur framfærenda ásamt upplýsingum um barnabætur eða hliðstæðar greiðslur vegna sömu barna sem greiddar hafa verið erlendis.

Fyrir barn sem öðlast heimilisfesti hér á landi á tekjuárinu skal einungis greiða barnabætur í hlutfalli við dvalartíma þess hér á landi á því ári. Þannig skal fjárhæð barnabóta skv. 3. gr. og skerðingarmörk vegna tekna sbr. 4. gr. ákvarðast í hlutfalli við dvalartímann.

3. gr. Fjárhæð barnabóta.

Greiða skal tekjutengdar barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu sem árlega skulu nema 199.839 kr. með fyrsta barni en 237.949 kr. með hverju barni umfram eitt. Tekjutengdar barnabætur með börnum einstæðra foreldra skulu vera 332.950 kr. með fyrsta barni en 341.541 kr. með hverju barni umfram eitt.

Til viðbótar barnabótum skv. 1. mgr. skal greiða tekjutengdar barnabætur með öllum börnum yngri en sjö ára á tekjuárinu. Skulu þær árlega nema 119.300 kr.

4. gr. Skerðing barnabóta vegna tekna.

Barnabætur samkvæmt 3. gr. skal skerða í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram 4.800.000 kr. hjá hjónum og umfram 2.400.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla laga nr. 90/2003, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003 og frádráttar skv. 31. gr. laga nr. 90/2003. Þá skulu tekjur sem maki framfæranda barns skv. 1. málsl. 7. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, aflar erlendis reiknast með tekjuskattsstofni samkvæmt þessari grein. Skerðingarhlutfall skv. 1. mgr. 3. gr. skal vera 4% með einu barni, 6% með tveimur börnum og 8% með þremur börnum eða fleiri. Skerðingarhlutfall skv. 2. mgr. 3. gr. skal vera 4% með hverju barni.

Fjárhæð barnabóta skal skerða um þær barnabætur eða hliðstæðar bætur sem greiddar hafa verið erlendis frá á sama tekjuári vegna barnsins.

5. gr. Ákvörðun barnabóta.

Barnabætur skulu ákveðnar á grundvelli skattframtals við álagningu, sbr. X. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Barnabætur sem eru ákvarðaðar lægri en 5.000 kr. á hvern framfæranda á grundvelli skattframtals falla niður. Úrskurður ríkisskattstjóra um fyrirframgreiðslu barnabóta skal vera endanleg úrlausn málsins á stjórnsýslustigi.

Barnabætur skulu greiddar með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en 1. júní en síðari greiðslan eigi síðar en 1. október.

5. gr. a. Skipt búseta barns.

Við þær aðstæður að foreldar hafa samið um skipta búsetu barns skal litið á hvort foreldri um sig sem framfærendur barnsins.

Grunnfjárhæð barnabóta vegna þess barns sem hefur skipta búsetu tekur mið af hjúskaparstöðu hvors foreldris fyrir sig í lok tekjuársins og ákvarðast barnabætur síðan sérstaklega fyrir hvort foreldri barnsins. Sé foreldri barns með skipta búsetu jafnframt ákvarðaðar barnabætur með fleiri börnum en einu skal ákvörðun grunnfjárhæðar vegna þess, með tilliti til fyrsta barns, ráðast af aldri þeirra barna og telst þannig elsta barn fyrsta barn. Skerðing barnabóta að teknu tilliti til tekjuskattsstofns skal miðast við fjölda barna í heild og aldurs þeirra á framfæri hvors foreldris í lok tekjuárs. Skerðingarfjárhæð skal deila niður á fjölda barna að teknu tilliti til fjárhæðar barnabóta hvers barns. Af þeirri fjárhæð, sem ákvarðast sérstaklega hjá hvoru foreldri vegna barns með skipta búsetu, eftir skerðingu, skal helmingur falla niður og kemur sú fjárhæð sem eftir stendur til útborgunar hjá einstæðu foreldri eða skiptist til helminga hjá hjónum eða sambúðarfólki.

6. gr. Fyrirframgreiðsla barnabóta.

Þar til álagning liggur fyrir, skv. 5. gr., skal ríkissjóður greiða fyrirfram upp í barnabætur ársins vegna barna sem voru yngri en 18 ára í árslok. Miða skal við fjölskyldustöðu framteljanda eins og hún er í árslok.

Við útreikning á skerðingu skv. 4. gr. skal taka tillit til fyrirliggjandi upplýsinga um staðgreiðsluskyldar tekjur vegna síðustu tólf mánaða ásamt upplýsingum úr framtali fyrra árs, m.a. um tekjur utan staðgreiðslu og eignastöðu í árslok.

Fyrirframgreiðsla skal nema 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en 1. febrúar en síðari greiðslan eigi síðar en 1. maí.

Heimilt er framteljanda að sækja um breytingu á fyrirframgreiðslu til ríkisskattstjóra á grundvelli fyrirliggjandi framtals ef tekjur og eignir samkvæmt því framtali víkja að verulegu leyti frá þeim upplýsingum sem lagðar voru til grundvallar við ákvörðun fyrirframgreiðslunnar. Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn framteljanda nema að breytingin leiði til a.m.k. 25% hækkunar eða lækkunar á fyrirframgreiðslunni.

Liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar að mati ríkisskattstjóra til að byggja ákvörðun barnabóta á, t.d. þegar framtali hefur ekki verið skilað, er engin fyrirframgreiðsla ákvörðuð nema að fenginni sérstakri umsókn frá framteljanda.

Fjársýsla ríkisins ávísar barnabótum til útborgunar.

7. gr. Skuldajöfnun barnabóta.

Barnabætur greiðast til framfæranda barns að því marki sem eftirstöðvum nemur þegar frá hafa verið dregnar fyrirframgreiddar barnabætur og ofgreiddar barnabætur. Barnabótum verður ekki skuldajafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

8. gr. Leiðrétting barnabóta.

Komi í ljós að maður hefur ranglega notið barnabóta samkvæmt reglugerð þessari eða barnabætur hafi verið ákvarðaðar of háar skal honum gert að endurgreiða þær að viðbættu 15% álagi. Um slíka leiðréttingu ríkisskattstjóra gilda ákvæði 95. gr. og 96. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, eftir því sem við getur átt.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Með gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 63/1999, um greiðslu barnabóta, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.