1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
2. gr.
Í stað orðsins "Ríkisskattstjóri" í 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: Skatturinn.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:
4. gr.
Í stað orðsins "ríkisskattstjóra" í 3. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: Skattinum.
5. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði IV. kafla er skattaðila heimilt að fresta leiðréttingu (bakfærslu) innskatts vegna öflunar mannvirkis skv. 2. tölul. 1. mgr. 12. gr. til 5. febrúar 2022 verði breyting á forsendu fyrir færslu innskatts skv. 2. mgr. sömu greinar á tímabilinu 1. mars 2020 til og með 31. desember 2021. Skilyrði frestunar eru eftirfarandi:
Sækja skal um frestun á leiðréttingu samkvæmt ákvæði þessu til Skattsins á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um viðkomandi mannvirki, þ. á m. um heimilisfang, fastanúmer, ástæðu og upphaf forsendubreytingar og fjárhæð uppreiknaðrar leiðréttingarskyldu, sbr. 2. tölul. 3. mgr. 14. gr.
Ef viðkomandi mannvirki verður tekið til notkunar í virðisaukaskattsskyldri starfsemi að nýju innan eins mánaðar frá lokum tímabils skv. 1. mgr. og frádráttarréttur verður við það tímamark að lágmarki jafn hár og hann var við forsendubreytingu skv. 1. mgr. kemur ekki til leiðréttingarskyldu af því tilefni. Það tímabil sem frestunin varir reiknast ekki til leiðréttingartímabils, sbr. 2. mgr. 14. gr. Á sama tímabili er ekki heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt af aðkeyptum rekstrarfjármunum, vörum, vinnu og öðrum aðföngum sem varða þann hluta mannvirkis sem umsókn skv. 2. mgr. tekur til, sbr. 15. og 16. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
Verði mannvirki tekið til skattskyldra nota að nýju, sbr. 3. mgr., ber skattaðila að tilkynna um slík breytt not til Skattsins. Skattaðili skal jafnframt tilkynna Skattinum ef fyrirhugað er að nota viðkomandi mannvirki áfram í starfsemi þar sem aðila ber minni eða enginn frádráttarréttur og leiðrétta (bakfæra) innskatt í samræmi við ákvæði IV. kafla, sbr. 14. gr.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 16. gr., sbr. 49. gr., laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. desember 2020.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Hlynur Ingason.